01 desember

3ji í tjallens 2004

Mjög erfitt að sofna og skuggalega auðvelt að vakna. Var búin að baka brauð fyrir allar aldir, skúraði mesta í eldhúsinu og bauð búdda-styttu hópnum í hádegismat. Ég var afsakandi, ef mig skyldi kalla...

3ji í tjallens fór samt að mestu fram í Chalmers þar sem búdda-styttu hópurinn reyndi að prenta út verkefnið. Ég var búin að lýsa því fyrir ykkur hvernig bölvun leggst á hvern þann sem umgengst Mahakala af vanvirðingu. Það er skemmst frá því að segja að það tók ca.3 klukkutíma að fá verkefnið saman og úr prentaranum í heilu lagi. Say no more.

Nú lyktar allt af einhverri strawberry fuzzy geðveiki fyrir 300 kall úr Body Shop og krossgátan úr laugardagsmogganum svo gott sem leyst. Unaður.







Powered by Blogger