29 mars

er hérna ennþá.

hef bara svo margt að segja að ég veit ekki hvar ég ætti að byrja. komið nógu mikið vor til að hægt sé að ganga í vinnuna. Það er mikilvægt og mjög gott mál.

16 mars

sænsk "vartecken" 2007

>>vartecken!" Þarna má sannanir þess að vorið bíður handan vetrar í Svíþjóð... Hjúkk.

14 mars

taugatrekkingur

Sef illa svo: "ég sé ekki mörkin milli dags og nætur", en lifi nú samt ekki í draumi...

27 febrúar

inndauður á dýnu

Hulda er að læra um risaeðlur í leikskólanum. Hún sagði mér að þær væru útdauðar. "En mamma, það er samt betra að vera inndauður. Þá er maður inni og dettur á dýnu...".

23 febrúar

Eiríkur Hauks

Hulda reif bókstaflega Fréttablaðið úr höndunum á mér í morgun því hún vildi skoða myndirnar af Eiríki Haukssyni. Ætli hún vilji vera hann næst þegar öskudagur rennur upp?

20 febrúar

tvennt

Af þessari síðu getur þú reiknað út hvað þarf margar jarðir ef allir sólunduðu eins og þú: http://www.myfootprint.org/ -Ég fékk út að það þarf ekki nema 2,9 jarðir ef allir lifðu eins og ég!

Af myndasíðu má sjá hvað Hulda er orðin góð í að standa á höndum...

Meira síðar.

18 febrúar

jólasveinn í febrúar.

Ánægð með að Eiríkur Hauksson skyldi vinna Euróvisjón Natjón. Hann hefur ekkert breyst í tuttugu ár. Finnst að Nivea DNage plús auglýsingarnar ættu að nota hann sem fyrirsætu.

Hulda ætlar að vera jólasveinn á öskudaginn.







Powered by Blogger